BYGG-appið – Hannarr ehf

BYGG-appið er hjálpartæki við
• Ástandsskoðun á fasteignum að utan og innan
• Að áætla kostnað við að laga það sem þarf – kostnaðaráætlun

Með appinu geturðu útbúið og prentað út ástandsskoðanir, viðhaldsáætlanir og gögn til að nota við ákvarðanir og samninga um framkvæmdina. Verð og verkþættir sem eru lögð til í appinu eru sótt úr verðbanka Hannarrs.
Þetta er allt hægt að framkvæma með BYGG-appinu þar sem þú hefur val um að kaupa 1, 2 eða 3 mánuði af notkun.

Það sem appið gerir
• Leggur til verkþætti sem líklegt er að þú munir velja til viðhalds
• Veitir þér aðgang að byggingaverðskrá Hannarrs til kostnaðaráætlana
• Býður þér upp á að breyta texta og verðum verkþátta
• Býður þér að bæta við nýjum verkþáttum eftir þínu höfði
• Lætur verklýsingar úr verðskrá Hannarrs fylgja öllum völdum verkþáttum
• Útbýr ástandsskoðunina þína með athugasemdum og myndum til niðurhals
• Útbýr og reiknar kostnaðaráætlunina þína til niðurhals
• Bætir við umsjónar-, óvissu- og eftirlitsþáttum
• Útbýr heildarviðhaldsáætlun til niðurhals
• Útbýr verktakahluta áætlunar til niðurhals
• Útbýr verklýsingu hvers verkþáttar til niðurhals
• Útbýr útboðsform verksins (magntöluskrá) til niðurhals

Það sem þú gerir
• Gefur áætluninni nafn
• Ferð yfir viðhaldsþætti og hakar við afgreiðslu þeirra
• Gerir athugasemd við þá viðhaldsþætti sem þurfa viðhald
• Tekur myndir með appinu af þeim viðhaldsþáttum
• Færir inn magn þeirra viðhaldsþátta sem við á
• Bætir við verkþáttum eftir þörfum úr byggingarverðskrá eða nýjum sem þú ákveður sjálf(ur)